Urriðaholtsskóli óskar eftir þroskaþjálfa á grunnskólastigi

side photo

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir þroskaþjálfa til að sinna stoðþjónustu á grunnskólastigi undir stjórn deildarstjóra stoðþjónustu. Teymiskennsla og teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.

Helstu verkefni:

  • Koma að sérkennslu og stoðþjónustu skólans
  • Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna með stuðning
  • Vinnur með nemendum sem búa við margvísleg fjölþætt vandamál og vinnur að lausnum á þeirra málum
  • Vinnur að áætlanagerð og mati sem og stuðningi annarra starfsmanna er koma að ákveðnum nemendum
  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun á svið þroskaþjálfunar
  • Reynsla af starfi í leik- og grunnskóla æskileg
  • Reynsla af starfi með einhverfum æskileg
  • Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma

Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun er ráðinn annar hæfur starfsmaður sem vinnur þá undir handleiðslu og stjórn deildarstjóra sérkennslu og stoðþjónustu. Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026. Gert er ráð fyrir að ráðningar taki gildi sem fyrst en einnig er um samkomulag varðandi upphaf ráðningar að ræða. 

Nánari upplýsingar um starfið veita Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri, thorgerduranna@urridaholtsskoli.is og Guðbjörg Vilhjálmsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu Urriðaholtsskóla, netfang gudbjorgvi@urridaholtsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.