Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns umsjónarmanns í 100% starfi í frístundaheimilinu Urriðakoti í Urriðaholtsskóla. Urriðakot þjónar tæplega 300 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi.
Í Urriðaholtsskóla eru rúmlega 600 nemendur frá 1 árs og upp í 10. bekk, þar af um 530 grunnskólanemendur og þar starfa 180 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og umsjón með faglegu starfi og daglegum rekstri Urriðakots í samstarfi við umsjónarmann.
- Samskipti og samstarf við skólann, félög og aðra þá sem bjóða upp á tómstundastarf fyrir börn
- Samstarf og samskipti við foreldra og starfsfólk skólans
- Upplýsinga- og kynningarstarf
- Staðgengill umsjónarmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfinu t.d. í tómstunda- og félagsmálafræðum eða sambærileg menntun æskileg
- Reynsla af starfi á frístundaheimili æskileg
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Almenn tölvukunnátta auk skipulags- og stjórnunarhæfileika
Umsóknarfrestur er til 13. Febrúar 2026. Ráðið er í starfið frá 1. mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veita Íris Ósk Ingadóttir umjónarmaður irisinga@urridaholtsskoli.is og Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri, thorgerduranna@urridaholtsskoli.is. Sími Urriðaholtsskóla er 5919500 og netfang skólans urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.