Urriðaholtsskóli óskar eftir umsjónarkennurum á yngsta stig

side photo

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir börn á aldrinum 1-16 ára. Auglýst er eftir umsjónarkennurum á yngsta stig til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Verið er að innleiða kennsluaðferðirnar Stýrð kennsla og fimiþjálfun.

Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum. Skólaárið 2025-26 eru rúmlega 600 nemendur við skólann, þar af rúmlega 430 nemendur í 1.-10. bekk.

Helstu verkefni:

  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
  • Að sinna daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
  • Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samtarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu og tileinkar sér kennsluhætti skólans
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Sérhæfing eða reynsla af kennslu á sínu skólastigi
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Reynsla af foreldrastarfi
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla æskileg

*Fáist ekki kennari með leyfisbréf til kennslu þrátt fyrir endurtekna auglýsingu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019

Frítt er í sund fyrir starfsfólk Garðabæjar, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands og einnig er hreyfistyrkur í boði fyrir starfsfólks sveitarfélagsins. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi í upphafi árs 2026, um 100% stöðu er að ræða.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.isog Una Guðrún Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri grunnskólastigs, netfang unagudrun@urridaholtsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.