Urriðaholtsskóli óskar eftir þroskaþjálfa á leikskólastig

side photo

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir þroskaþjálfa til að sinna stoðþjónustu á leikskólastigi undir stjórn sérkennslustjóra. Teymiskennsla og teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.

Helstu verkefni:

  • Koma að sérkennslu og stoðþjónustu skólans
  • Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna með stuðning
  • Vinnur að áætlanagerð og mati á námi barna í samráði við annað starfsfólk
  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af starfi í leik- og grunnskóla æskileg
  • Reynsla af starfi með einhverfum æskileg
  • Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu

*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun er ráðinn annar hæfur starfsmaður sem vinnur þá undir handleiðslu og stjórn deildarstjóra sérkennslu og stoðþjónustu.

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.

  • Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir.
  • Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum.
  • 25% stöðugildi er á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir.
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum.
  • Önnur fríðindi eru frítt í sund fyrir starfsfólk, bókasafn Garðabæjar og á Hönnunarsafnið sem og hreyfistyrk.

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.