Frístundastarf fer fram frá kl. 13:30 og stendur til kl. 16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi. Í frístund dvelja börn frá 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur við leik og ýmis fjölbreytt verkefni.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt stefnu Urriðaholtsskóla og kom að uppbyggingu skólasamfélagsins. Gildi skólans eru; virðing, ábyrgð, umhverfi. Í skólanum verða yfir 600 nemendur frá leikskóla og upp grunnskólann skólaárið 2025-2026. Við skólann starfa vel yfir 150 einstaklingar sem hafa það að markmiði að mæta börnum eftir þörfum þeirra í leik og starfi og koma til móts við áhuga þeirra og þarfir. Vel er búið að börnum og fullorðnum og aðstaða góð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum út frá væntingum og gildum Urriðaholtsskóla
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur
- Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Sinnir frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi í sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is eða Íris Ósk Ingadóttir forstöðumaður frístundar, netfang irisinga@urridaholtsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.