Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólakennara

side photo

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennurum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Á næsta skólaári verða um 190 leikskólabörn á 8 deildum frá 1-5 ára.

Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.

Helstu verkefni:

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

  • Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar

Hlunnindi:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið. 

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi í upphafi skólaárs í ágúst 2025. Um 100% stöðu er að ræða.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.