Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir háskólamenntuðum einstaklingum til að sinna m.a. stuðningi og þjálfum barna á leik- og grunnskólastigi. Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
Helstu verkefni:
- Sinnir atferlisþjálfun nemenda á leik- og grunnskólastigi og vinnur undir stjórn deildarstjóra stoðþjónustu skólans
- Koma að þjálfun, stuðningi og atferlismótun barna á leikskólastigi
- Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna
- Vinna að áætlanagerð og mati á framvindu barna í samráði við sérkennslustjóra og heimsvæðastjóra/umsjónarkennara
- Situr teymisfundi, nemendaverndarráðsfundi og sinnir foreldrasamstarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BS í sálfræði eða á sviði menntunar-, uppeldis- eða kennslufræði eða sambærilegt nám
- Viðbótarnám í hagnýtri atferlisgreiningu er skilyrði
- Reynsla af starfi í leikskóla og grunnskóla æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025. Gert er ráð fyrir að ráðningar taki gildi sem fyrst en í síðasta lagi 1. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is og Guðbjörg Vilhjálmsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu Urriðaholtsskóla, netfang gudbjorgvi@urridaholtsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.