Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir börn á aldrinum 1-16 ára. Auglýst er eftir grunnskólakennurum í teymi á öll skólastig, til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Verið er að innleiða kennsluaðferðirnar Stýrð kennsla og fimiþjálfun.
Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum. Skólaárið 2025-26 verða rúmlega 600 nemendur við skólann, þar af rúmlega tæplega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Helstu verkefni:
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
- Að sinna daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
- Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu og tileinkar sér kennsluhætti skólans
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Sérhæfing eða reynsla af kennslu á sínu skólastigi
- Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
- Reynsla af foreldrastarfi
- Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla æskileg
Frítt er í sund fyrir starfsfólk Garðabæjar, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands og einnig er hreyfistyrkur í boði fyrir starfsfólks sveitarfélagsins. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi frá og með næsta skólaári, þ.e. í ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.