Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennara til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi.
Þetta skólaár eru leikskólabörn á 7 deildum frá þriggja til fimm ára gert er ráð fyrir að leikskólabörnum fjölgi á næsta skólaári og að skólastigið verði heilstætt hvað aldur varðar.
Auglýst er eftir deildarstjórum á 3 deildir.
Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
Helstu verkefni:
- Vinnur að uppeldi og menntun barna
- Að stýra daglegu fagstarfi deildar og skipulagi
- Vinnur að áætlanagerð og mati á námi barna og starfi leikskólans
- Er hluti af stjórnendateymi leikskólastigs
- Foreldrasamstarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
- Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar
- Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir
- Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum
- Önnur fríðindi eru frítt í sund fyrir starfsfólk, bókasafn Garðabæjar og á Hönnunarsafnið sem og hreyfistyrkur
Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2025. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi ekki síðar en 1. apríl. Um 100% stöðu er að ræða.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.