Urriðaholtsskóli auglýsir eftir starfsfólki í Frístund

side photo

Frístundastarf fer fram frá kl. 13:30 og stendur til kl. 16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi. Í frístund dvelja börn frá 1.- 4. bekk eftir að skóla lýkur við leik og ýmis fjölbreytt verkefni. Möguleiki á 100% starfi.

Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt stefnu Urriðaholtsskóla og koma að uppbyggingu skólasamfélagsins. Gildi skólans eru; virðing, ábyrgð og umhverfi. Í skólanum verða tæplega 600 nemendur frá leikskóla og upp grunnskólann skólaárið 2024-25. Við skólann starfa vel yfir 100 einstaklingar sem hafa það að markmiði að mæta börnum eftir þörfum þeirra í leik og starfi og koma til móts við áhuga þeirra og þarfir. Vel er búið að börnum og fullorðnum og aðstaða góð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum út frá væntingum og gildum Urriðaholtsskóla
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur
  • Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Sinni frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum

Umsóknarfrestur er til 25. október 2024. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla, s. 5919500, netfang thorgerduranna@urridaholtsskoli.is eða Íris Ósk Ingadóttir forstöðumaður frístundar netfang irisinga@urridaholtsskoli.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélagi Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilsskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.