Leiðbeinandi í Ungmennahúsi Garðabæjar

side photo

Ungmennahús Garðabæjar óskar eftir að ráða leiðbeinanda til starfa í nýju ungmennahúsi sem á Garðartorgi. Hlutverk leiðbeinanda er að taka virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd starfsemi ungmennahússins, sem er ætlað ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Ungmennahúsið býður upp á öruggt og skapandi umhverfi þar sem ungt fólk getur varið frítíma sínum, tekið þátt í fjölbreyttu klúbbastarfi og sértæku hópastarfi. Markmið ungmennahússins er að skapa öruggt og styðjandi umhverfi fyrir ungmenni til að efla félagslega, tilfinningalega og persónulega þroska þeirra, geta fundið tilgang og tækifæri til að þróast í jákvæðu umhverfi.

Um er að ræða tímavinnu á dag- og kvöldvöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sinna vöktum í Ungmennahúsi Garðabæjar.
  • Skipuleggja og framkvæma sértækt hópastarf, námskeið, fræðslu og samvinnu við stofnanir, félög og aðra aðila.
  • Móta fjölbreytt frístundarstarf með forvarnarmarkmið að leiðarljósi.
  • Taka þátt í viðburðum með ungmennum á vegum ungmennahússins.
  • Styðja við rekstur samfélagsmiðla ungmennahússins og skapa efni fyrir þá.
  • Sækja fræðslu í samráði við annað starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði uppeldis-, tómstunda- eða félagsmálafræði. Háskólamenntun á þessum sviðum er kostur.
  • Reynsla af starfi með ungmennum er nauðsynleg, þekking á málaflokknum æskileg.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á helstu forritum til efnissköpunar.
  • Kunnátta á samfélagsmiðlum og reynsla af efnissköpun.
  • Snyrtimennska, framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Heiðarleiki, stundvísi og umburðarlyndi.
  • Hæfni til samráðs og samvinnu við ungmenni, forráðafólk og samstarfsfólk.
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára gamall.

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar. Starfsmaður þarf að geta hafið störf strax.

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Jónasdóttir, verkefnastjóri Ungmennahúss Garðabæjar, í gegnum netfangið ragnhildurjona@urridaholtsskoli.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.