Ungbarnaleikskólinn Sunnuhvoll auglýsir eftir leikskólakennara með möguleika á afleysingu sem deildarstjóri næsta skólaár. Við erum tveggja deilda leikskóli með 27 börn á aldrinum 12 - 24 mánaða. Einkunnarorð okkar eru: Fagmennska, umhyggja og gleði sem við viljum að endurspeglist í öllu okkar starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi:
Á Sunnuhvoli er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leikskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
- Auk þess er Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Brynjólfsdóttir, leikskólastjóri í síma 591-9380 eða á netfanginu sunnuhvoll@sunnuhvoll.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.