Leikskólinn Sunnuhvoll óskar eftir leikskólakennara

side photo

Við erum tveggja deilda ungbarnaleikskóli með 27 börnum. Gildin okkar eru: Fagmennska, umhyggja og gleði sem við viljum að endurspegli allt okkar starf. 

Helstu verkefni

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Hlunnindi

  • Á Sunnuhvoli er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað yfir árið
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2 janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort auk styrk til hreyfingar eftir 6 mánuði í starfi

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veita Jónína Guðrún Brynjólfsdóttir, leikskólastjóri í síma 591-9380 eða með því að senda tölvupóst á sunnuhvoll@sunnuhvoll.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. 
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.