Biðlisti - Fjölbreytt sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni (fædd árið 2007)

side photo

Umsækjendur skulu vera fæddir árið 2007. Hægt er að sækja um í umhverfishópum, þjónustu við eldri borgara í Jónshúsi, störf í leikskólum og sem aðstoðarmenn á sumarnámskeiðum íþrótta- og tómstundafélaga.

Nánari upplýsingar og lýsingar á störfunum má finna hér 

Umsóknafrestur er til og með 13. maí 2024 en byrjað verður að vinna úr umsóknum í lok mars. Umsækjendur skulu sækja um ofangreind störf hér fyrir neðan.

Vinsamlega athugið að þegar umsókn hefur verið fullkláruð berst staðfestingarpóstur um að umsókn sé móttekin. Berist sá póstur ekki þarf að yfirfara skráningu umsóknar.