Sjálandsskóli auglýsir eftir forfallakennara

side photo


Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ með 270 nemendum og um 60 starfsmenn. Starfsmenn skólans vinna saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf og lögð áhersla á samvinnu, jákvæði samskipti og teymiskennslu. Góður starfsandi ríkir í skólanum og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans www.sjalandsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Tilfallandi stundakennsla / forfallakennsla skólaárið 2024-2025

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg

*Fáist ekki kennari með leyfisbréf til kennslu,þrátt fyrir endurtekna auglýsingu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2024

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja Þóra Gunnarsdóttir, skólastjóri sesseljag@sjalandsskoli.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttafélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.