Stuðningsfulltrúar óskast við Sjálandsskóla

side photo

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80-100% starf.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ með 270 nemendum og um 60 starfsmenn. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd

Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri á netfangið sesseljag@sjalandsskoli.is eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri á netfangið oska@sjalandsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.