Sjálandsskóli óskar eftir kennara fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku

side photo

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða kennara fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku í 80-100% starf. Um er að ræða tímabundna ráðningu fyrir skólaárið 2024-2025.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 270 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.


 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kennsla og skipulagning á námi nemenda með íslensku sem annað tungumál
  • Ráðgjöf til kennara og stuðningsfulltrúa
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Áætlanagerð í samráði við kennara, foreldra og nemendur
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu


Menntun, reynsla og hæfni:

  • Leyfisbréf til kennslu *(leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg
  • Lausnamiðað viðhorf til flókinna úrlausnarefna

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu þrátt fyrir endurtekna auglýsingu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr.95/2019

Umsóknarfrestur er til og með 22. október 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja Þóra Gunnarsdóttir, skólastjóri sesseljag@sjalandsskoli.is/ 5903100 eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri, oska@sjalandsskoli.is / 5903100

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.