Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í dönsku í 8.-10. bekk í 35% starf.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 260 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggur nám og kennslu í dönsku í 8.-10. bekk.
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu á unglingastigi
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Lágmark 90 námseiningar á einu sviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á skólaþróun
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/ eða starfi með börnum/ ungmennum er æskileg
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 17. september. Nauðsynlegt er að umsækjandi getið hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri, sesseljag@sjalandsskoli.is eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri oska@sjalandsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér að neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.