Garðabær óskar eftir að ráða starfsmann á skammtímadvöl fyrir börn með fötlun. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið allar vaktir og aðra hverja helgi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall 90% eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða virkilega fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum.
Helstu verkefni
- Leikur og starf með börnunum
- Aðstoð við athafnir daglegs lífs
- Þátttaka í faglegu starfi
- Samskipti við foreldra og aðstandendur
Menntun og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af starfi með einstaklingum með fötlun æskileg
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nína Björk Gísladóttir forstöðumaður með netfangið ninagi@gardabaer.is eða í síma 617-1585
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.