Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir starfsmanni í stuðning

side photo

Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir einstakling í 50% stöðu til að sinna stuðning við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra.

Við á Mánahvoli leggjum áherslu á faglegt samstarf innan sérkennslunnar þar sem unnið er í teymisvinnu að stuðningi og kennslu barna með sérþarfir.

Leikskólinn er átta deilda ungbarnaleikskóli. Einkunnarorð skólans er samvinna, traust, sköpun og gleði. Heimasíða leikskólans http://www.manahvoll.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að sinna barni með sérþarfir
  • Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
  • Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfasbr. lög nr. 95/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2024. Staðan sem um ræðir er 50%, best væri ef umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 621-9360 eða með því að senda tölvupóst á kristinsigu@manahvoll.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.