Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir deildastjóra

side photo

Mánahvoll er ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Við leggjum áherslu á samvinnu, traust, gleði og sköpun þar sem það endurspeglast í öllu daglegu starfi leikskólans. Dagskipulagið byggir á þörfum barnanna og leiðum til að tryggja vellíðan þeirra. Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 31. maí 2024. Um framtíðarstarf er að ræða.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 621-9360 eða með því að senda tölvupóst á kristinsigu@leikskolarnir.is 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.