Starf á heimili fatlaðs fólks

side photo

Auglýst er eftir starfsmanni á heimili fatlaðs fólks, um vaktavinnu er að ræða. Unnið að jafnaði aðra hverja helgi, morgun, dag, kvöld og næturvaktir.

Um 25% starf er að ræða og hærri prósentu í sumar.

Starfað í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.

Hér má sjá þau hlunnindi sem starfsmönnum Garðabæjar bjóðast.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita persónulega aðstoð og stuðning
  • Veita félagslegan stuðning og hvatningu
  • Veita aðstoð við almenn heimilisstörf
  • Önnur störf sem starfsmanni eru falin af yfirmanni

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d. félagsliða/stuðningsfulltrúanám
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lipurð í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Bílpróf skilyrði
  • Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ára

Umsóknarfestur er til og með 12.febrúar. 2026

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Friðriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 6171581 á skrifstofutíma eða með því að senda tölvupóst á ingibjorgf@gardabaer.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.