Ert þú til í að koma og vinna með frábærum börnum og starfsfólki.
Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Helsta náms og þroskaleið barna er hinn frjálsi og sjálfssprottni leikur og er leiknum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og kærleiksrík samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.
Leiðarljós leikskólans eru: Öryggi, Gleði, Jákvæðni, Virðing.
Í Garðabæ geta starfsmenn sótt um styrk í þróunarsjóð og er markmið hans að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi í leikskólum Garðabæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi
- Á Krakkakoti er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 0,25% stöðugildi vegna snemmtækra íhlutunar inn á hverri deild.
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
- Fimm skipulagsdagar á ári.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2024. Staðan er laus frá 6. janúar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Gunnlaugsdóttir (Agga) leikskólastjóri í síma 5502330 eða með því að senda tölvupóst á ragnhildurg@krakkakot.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.