Krakkakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf

side photo

Ert þú tilbúin að koma og vinna með frábærum börnum og skemmtilegu samstarfsfólki?

Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Helsta náms og þroskaleið barna er hinn frjálsi og sjálfssprottni leikur og er leiknum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og kærleiksrík samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.

Leiðarljós leikskólans eru: Öryggi, Gleði, Jákvæðni, Virðing.

Í Garðabæ geta starfsmenn sótt um styrk í þróunarsjóð og er markmið hans að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi í leikskólum Garðabæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi

  • Full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrafrí, páska- og jólafrí
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2024. Staðan er laus strax eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Gunnlaugsdóttir (Agga) leikskólastjóri í síma 5502330 eða með því að senda tölvupóst á ragnhildurg@krakkakot.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.