Krakkakot auglýsir eftir leikskólasérkennara/þroskaþjálfa í 70-100% starf

side photo

Náttúruleikskólinn Krakkakot auglýsir eftir leikskólasérkennara/þroskaþjálfa í 70-100% stöðu til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra.

Framtíðarsýn okkar á Krakkakoti er að þróa faglegt samstarf innan sérkennslunnar þar sem unnið er í teymisvinnu að stuðningi og kennslu barna með sérþarfir.

Í Garðabæ geta starfsmenn sótt um styrk í þróunarsjóð og er markmið hans að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi í leikskólum Garðabæjar.

Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Helsta náms og þroskaleið barna er hinn frjálsi og sjálfssprottni leikur barna og er leiknum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og kærleiksrík samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að sinna barni með sérþarfir
  • Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
  • Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg.
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæð og sjálfstæð vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa.

Hlunnindi

  • Full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrafrí, páska- og jólafrí.
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
  • Fimm skipulagsdagar á ári.
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.

Starfið sem um ræðir er á deild 2-3 ára barna, umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2024

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Gunnlaugsdóttir (Agga) leikskólastjóri í síma 5502330 eða með því að senda tölvupóst á ragnhildurg@krakkakot.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.