Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 62 börn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Áherslur í starfi með börnum eru vellíðan, gleði, sjálfstæði og lýðræði ásamt náttúru og umhverfi.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.
Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra
- Samskipti og samvinna við foreldra
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri fela starfsmanni
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Reynsla af vinnu með börnum sem þurfa stuðning í hóp
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi:
- Á Kirkjubóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrafrí, páska- og jólafrí
- Leikskólinn lokar kl. 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Forgangur er í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort á Hönnunarsafn Íslands. Auk þess er hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi
- Í leikskóla Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2026. Staðan er laus eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Ósk Þráinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 591 9360.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.