Þroskaþjálfi óskast í leikskólann Kirkjuból

side photo

Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Okkur er annt um rödd barnanna og vinnum markvisst með eftirfarandi þætti í daglegu starfi.

  • John Dewey
  • Barnasáttmálinni sameinuðuþjóðanna
  • Lýðræðislegt leikskólastarf
  • Sjálfstæði og valdefling
  • Vellíðan og gleði

Erum að uppfæra skólanámskrá leikskólans í tengslum við 40 ára afmæli leikskólans 1. Nóvember 2025, spennandi vinna fram undan.

Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.

Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.

Fengum styrk úr þróunarsjóð "Matstofa barnanna á Kirkjubóli". Markmið okkar er að fækka kennarastýrðum stundum og auka valdeflingu og sjálfstæði barna í skólanum með því að gefa þeim fleiri tækifæri á að efla trú sína á eigin getu.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.

Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna við stuðning og sérkennslu barna á deild í samstarfi við sérkennslustjóra.
  • Vera hluti að sérkennsluteymi og sitja teymisfundi
  • Vinnur að áætlanagerð og mati á námi barna í samráði við sérkennslustjóra og annað starfsfólk

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf sem þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Reynsla af starfi með einhverfum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf sem þroskaþjálfi eða til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Um er að ræða stuðningur við börn á deild ásamt öðru tilfallandi verkefni sem er laus um áramót a eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 15. desember 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Anna Haraldsdóttir, leikskólastjóri og Berglind Ósk Þráinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 591 9360. Einnig hægt að senda tölvupóst á netfangið: kirkjubol@kirkjubolid.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.