Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Áherslur í starfi með börnum eru vellíðan, gleði, sjálfstæði og lýðræði ásamt náttúru og umhverfi.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.
Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Einnig að vinna með sérkennslustjóra varðandi börn með stuðning
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Reynsla að vinna með börnum sem þurfa stuðning í hóp
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2024. Um er að ræða að hluta til stuðning við börn á deild sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Anna Haraldsdóttir, starfandi leikskólastjóri í síma 5919360/6171564 og Hildur Rut Stefánsdóttir, starfandi aðstoðarleikskólastjóri í síma 5919360. Einnig hægt að senda tölvupóst á netfangið: kirkjubol@kirkjubolid.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.