Starfsmaður óskast í Jónshús - félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ

side photo

Starfsmaður óskast í 100% starf í Jónshús félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ. Í Jónshúsi er hlýlegt og gefandi umhverfi.
Um er að ræða tímabundið starf með möguleika á framtíðarráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð í eldhúsi og við bakstur
  • Almenn störf í kaffiteríu, s.s. undirbúningur og sala á kaffiveitingum
  • Frágangur í eldhúsi og sal
  • Almenn þrif og frágangur á eldhúsi og sal (fyrir utan gólf og salerni)
  • Önnur verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Stundvísi og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af bakstri er kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Hlunnindi:

Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.

Umsóknarfrestur er til með 2. maí 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Þ. Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður í félagsstarfi eldri borgara í síma 617-1601 eða með því að senda tölvupóst á netfangið elinthorste@gardabaer.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.