Sumarstörf í sundlauginni Ásgarði

side photo

Garðabær auglýsir eftir starfsfólki til sumarstarfa við sundlaug Garðabæjar í Ásgarði. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er vinnutími á vöktum, 8 tíma í senn virka daga og 11 tíma um helgar.

Leitað er að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmönnum til starfa sem falla vel samskipti við börn og unglinga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Eftirlit með iðkendum og gestum íþróttamiðstöðvarinnar
  • Almenn ræsting í íþróttamiðstöð
  • Afgreiðslustörf
  • Ræsting, umhirða og eftirlit í búningsklefum kvenna/kvenna
  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hreint sakavottorð
  • Samskiptahæfni við börn og fullorðna
  • Hæfileiki og vilji til að vinna með öðrum starfsmönnum
  • Skyndihjálparnámskeið, sundvarðarpróf, (í boði er námskeið)
  • Áhugi á íþróttum og heilsurækt er æskilegur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reyklaus

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Hilmarsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja, í tölvupósti á kristjanh@gardabaer.is eða í síma 550-2302.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.