Frístundaklúbburinn Ungmennahraun auglýsir eftir starfsfólki

side photo

Frístundaklúbburinn Ungmennahraun auglýsir eftir starfsfólki. Opnunartími Ungmennahrauns er frá 13:00 - 16:30 alla virka daga. Í boði eru hlutastörf og tímavinnustörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Þetta starf hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.

Ungmennahraun er sértækt frístundarþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-20 ára og staðsett á Álftanesi. Markmið frístundarinnar er að veita ungmennum sem þar dvelja öruggt og skapandi umhverfi með það að markmiði að efla félgasfærni og sjálfstæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að styðja nemendur með sérþarfir
  • Að stuðla að jákvæðu umhverfi og vera öðrum fyrirmynd
  • Að efla velferð og félagslegan þroska ungmennanna
  • Að fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Samráð og samvinna við ungmenni, foreldra, samstarfsfólk og aðra sem koma að frístundarstarfinu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Jákvæðni og ábyrgðarkennd
  • Frumkvæði og lausnamiðað viðhorf
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Arnar Þráinsson, Forstöðumaður frístundastarfs fatlaðara barna og ungmenna, netfang: agustthr@gardabaer.is og sími: 820-8594 og 525-8594.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.