Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

side photo

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall vegna fæðingarorlofs.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni:

  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
  • Vinna að faglegu starfi deildar
  • Tekur þátt í foreldrasamvinnu

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf til kennslu, önnur uppeldisfræðimenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi

  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

Um er að ræða 100% starfshlutfall.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnhildur Skúladóttir, leikskólastjóri, 5502381 / 8215018 eða með því að senda fyrirspurn á á ragnhildursk@holtakot.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.