Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir deildastjóra í 100% starfshlutfall

side photo

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar". Auk þess að vinnum við út frá Leikur að læra þar sem áherslan er á bóklegt nám í gengum leik.

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi

  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 1 ágúst 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri í síma 5502381 / 8215018 eða með því að senda fyrirspurn á ragnhildursk@holtakot.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.