Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

side photo

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullir starfsmenn hafa tækifæri til að auka við laun sín.

Helstu verkefni:

  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
  • Vinna að faglegu starfi deildar
  • Tekur þátt í foreldrasamvinnu

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi

  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.

Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2024. Um er að ræða 100% starfshlutfall.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnhildur Skúladóttir, leikskólastjóri, s. 55023080, netfang ragnhildursk@holtakot.is og Elva Dögg Kristjánsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, s. 5502381 netfang elvakr@holtakot.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.