Hofsstaðaskóli í Garðabæ auglýsir eftir framsæknum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna starfi deildarstjóra á miðstigi. Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og hluti af stjórnendateymi skólans. Í Hofsstaðaskóla eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 85 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni deildarstjóra eru meðal annars:
- Vinnur með og undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi skólans
- Ber ábyrgð á stjórnun á miðstigi skólans
- Skipulag, samræming og utanumhald varðandi skólanámskrá og námsmat
- Utanumhald um málefni nemenda varðandi ástundun, nám og líðan í samráði við foreldra
- Skipulag og framkvæmd daglegs skólastarfs með farsæld barna að leiðarljósi
- Forysta í skólaþróun
- Sinnir kennslu á viðkomandi skólastigi skv. kjarasamningi SÍ
- Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
Kröfur um menntun, reynslu og hæfni umsækjenda:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Reynsla af þátttöku í skólaþróunarverkefnum og teymisvinnu
- Kennslureynsla á grunnskólastigi
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi og reynsla af stjórnun æskileg
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þekking á Leiðsagnarnámi og Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 9. október.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Starfsmenn sveitarfélagsins fá frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands eftir 3 mánuði í starfi auk möguleika á heilsuræktarstyrk eftir 6 mánuði í starfi. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.