Hæðarból er þriggja deilda skóli með 53 börn á aldrinum 18 mánaða til sex ára. Leikskólinn vinnur eftir kenningum bandaríska heimspekingsins og sálfræðingsins John Dewey " Learning by Doing " og uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar (e. restitution). Þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, uppbyggilega orðræðu og gagnkvæma virðingu, hægt er að lesa meira um hugmyndafræðina á; Uppbygging sjálfsaga | uppeldi til ábyrgðar
Einkunnarorð skólans eru, gleði, leikur, nám sem fléttast inn í alla starfs- og kennsluhætti skólans. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, góð samskipti, umburðarlyndi, jákvæðni og sveigjanleika.
Sérstaða leikskólans er mannauðurinn því á Hæðarbóli starfar mikið af fagfólki og reynslu miklum leiðbeinendum sem leggur ríka áherslu á faglegt og gott starf með börnunum. Mannauður sem hefur metnað og fær að nýta styrkleika sína og áhugasvið sitt með börnunum. Mannauður sem kemur fram við börnin að virðingu, hlustar á þau og velur orðræðuna af kostgæfni.
Heimasíða leikskólans: https://haedarbol.is/
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Menntun á sviði sérkennslufræða, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er ráðinn annar starfsmaður með menntun sem nýtist í starfa tímabundið sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi:
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
- Heilsuræktarstyrkur, eftir sex mánuði í starfi eiga starfsmenn rétt á 20.000 kr í heilsuræktarstyrk
- Sundkort, eftir þrjá mánuði í starfi geta starfsmenn Garðabæjar fengið árskort í sundlaug Garðabæjar án endurgjalds
- Menningarkort, eftir þrjá mánuði í starfi geta starfsmenn Garðabæjar fengið aðgang að Hönnunarsafni Íslands án endurgjalds.
- Bókasafnskort, eftir þrjá mánuði í starfi geta starfsmenn Garðabæjar fengið árskort á Bókasafn Garðabæjar án endurgjalds.
Um er að ræða 80-100% starf sem er laust frá 1. febrúar 2025 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Rósa Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 6171549 eða með því að senda tölvupóst á jonarosa@haedarbol.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og menntunargögn.