Garðaskóli í Garðabæ er unglingaskóli þar sem rúmlega 620 nemendur stunda nám í 8.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólk sérhæfi sig í vinnu með unglingum og kennslu faggreina. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni: www.gardaskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda í 8. - 10. bekk í samvinnu við aðra enskukennara
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á skólaþróun
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af enskukennslu á unglingastigi og/eða í framhaldsskóla er æskileg
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með unglingum er æskileg
- Þekking á uppeldisstefnunni Uppbygging sjálfsaga er æskileg
Um 100% starf er að ræða í afleysingu í eitt ár.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2025.
Ráðning er frá 1. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veita Jóhann Skagfjörð Magnússon skólastjóri (johannmagn@gardaskoli.is) og Ásta Huld Henrýsdóttir (astahuld@gardaskoli.is).
Ráðið er í starfsheitið grunnskólakennari. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag grunnskólakennara.
Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af leyfisbréfi til kennslu.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér að neðan.