Flataskóli leitar eftir atferlisfræðingi, skólaárið 2025-2026. Um er að ræða 80-100% starf þar sem unnið er með nemendum. Möguleiki er að hefja störf fyrr ef áhugi er fyrir því.
Í Flataskóla starfa um 300 nemendur í 1. - 7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins.
Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.
Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjálfun og utanumhald nemenda með hegðunarfrávik
- Gerð áætlana, þjálfun, vinna með félagsfærni og aðlögun námsaðstæðna í samvinnu við fagfólk, stuðningsfulltrúa og foreldra
- Ráðleggja fagfólki varðandi úrræði fyrir nemendur með hegðunarvanda
- Halda utan um skráningu, þjálfun og endurmat nemenda
- Funda reglulega með teymum nemenda til að fara yfir stöðu þeirra t.d. markmið í áætlunum, endurmat og ákvörðun um framvindu þjálfunar
Hæfniskröfur:
- Atferlisráðgjafamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og góð færni í að starfa í teymi
- Þolinmæði og afbragðs hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Reynsla af starfi með nemendum með hegðunarfrávik er æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðveig Hanna Friðriksdóttir skólastjóri, heidveigf@flataskoli.is og í s.5133500
Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Öllum umsóknum verður svarað.