Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir deildarstjóra á eldri deild. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikgleði - Agi - Lífsleikni
Leikskólastjóri er Harpa Dan Þorgeirsdóttir
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- Sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi:
- Á Bæjarbóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og fyrsta virka dag ársins vegna styttingar starfsfólks.
- Leikskólinn lokar kl. 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga.
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
- Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 9. febrúar 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri í gegnum tölvupóst á baejarbol@baejarbol.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.