Leikskólinn Bæjarból í Garðabæ auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra

side photo

Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í afleysingu í 6 - 7 mánuði frá og með 2. febrúar 2026. Staðan er 100% en verksvið aðstoðarleikskólastjóra skiptist í 40% stjórnun og 60% vinnu með börnunum.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu grónu hverfi, hann er fjögurra deilda og þar er rými fyrir 86 börn. Bæjarból er heilsueflandileikskóli með áherslu á hreyfingu, sköpun og útiveru.

Einkunnarorð skólans eru : Leikgleði - Agi - Lífsleikni.

Heimasíða skólans er www.baejarbol.is.

Leitað er að jákvæðum einstakling sem er framsýnn í skólamálum, sýnir frumkvæði og býr yfir hæfni í samskiptum.

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.

Starf aðstoðarleikskólastjóra er frábært tækifæri fyrir áhugasama, þar gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í þróun leikskólastarfs og hafa áhrif í sterku stjórnendateymi. Á komandi skólaári verður haldið áfram að innleiða Barnasáttmála sameinuðuþjóðanna og auka lýðræði barna ásamt því að endurskoða skólanámskrá leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum

Menntun, hæfni og reynsla:  

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 60 námseiningar í uppeldis- og kennslufræðigreinum
  • Sérhæfð hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla að stjórnun æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta

Hlunnindi:

  • Á Bæjarbóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga.
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
  • Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.

Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Dan Þorgeirsdóttir, leikskólastjóri, í gegnum netfangið baejarbol@baejarbol.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.