Umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum verkefnastjóra til starfa á umhverfissviði Garðabæjar. Leitað er að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, býr yfir sterkri samskiptahæfni og leggur sig fram við að ná árangri í samstarfi við aðra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með framkvæmdarverkefnum bæjarins í samstarfi við yfirmann ásamt umsjón með götulýsingu bæjarins.
- Eftirfylgni verkefna sem snúa að framkvæmdum á veitu og gatnakerfum, í samráði við þjónustumiðstöð bæjarins.
- Undirbúningur, framkvæmd og eftirfylgni verkefna.
- Samskipti við hönnuði, verktaka, íbúa, stjórnendur stofnana og aðra hagsmunaraðila.
- Eftirlit með framvindu verkefna og að þau séu unnin samkvæmt áætlun, fjárhagsramma, gæðakröfum og gildandi lög og reglur.
- Aðkoma að gerð fjárhagsáætlana og regluleg skýrslugerð til stjórnenda og eftirlitsaðila eftir þörfum.
- Þátttaka í stefnumótun, þróun sviðsins og innleiðingu nýrra lausna.
- Önnur tilfallandi verkefni á vegum umhverfissviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf í verk- tækni-, og/eða byggingafræði.
- Þekking og reynsla á verklegum framkvæmdum er skilyrði.
- Þekking og reynsla á verkefnastjórnun og samskiptum við hagaðila æskileg.
- Reynsla af sambærileg starfi er kostur.
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð, hæfni til ákvarðanatöku og góð forgangsröðun.
- Hæfni til að vinna undir álagi og halda mörgum verkefnum í gangi samtímis.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli B-2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Gild ökuréttindi.
Um 100% starf er að ræða og er æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, síma 5258575 eða með því að senda tölvupóst á egillgi@gardabaer.is
Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsókn skal fylgja starfsferliskrá og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda, menntun og reynslu sem varpað getur ljósi á færni hans til að sinna umræddu starfi.