Við leitum að deildarstjóra í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ert til í að vinna með ólíkum einstaklingum eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi. Á Ökrum vinnum við eftir Uppeldi til ábyrgðar (uppbyggingastefnan). Uppeldi til ábyrgðar snýst að mestu um samskipti, ef samskipti eru góð og gefandi þá má byggja á þeim árangursríkt nám. Þetta er aðferð við að kenna sjálfstjórn og sjálfsaga og styrkja einstaklinga í því að læra af mistökum.
Viltu vera með okkur í liði?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- Sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntun, hæfni og reynsla
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
Hlunnindi í starfi
- Á Ökrum er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
- Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2025. Staðan er laus eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún V. Ásgeirsdóttir leikskólastjóri í síma 512-1530 eða með því að senda tölvupóst á gudrunas@akrar.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.