Vélamaður í þjónustumiðstöð

side photo

Vélamaður óskast í Þjónustumiðstöð Garðabæjar. Þjónustumiðstöðin þjónustar allar stofnanir bæjarins og tekur við ábendingum frá íbúum og bregst því sem betur má fara.
Vinnutími er frá klukkan 07:20 til 16:40 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum er unnið frá klukkan 07:20 til 14:10.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn vélavinna, snjómokstur og þrif á götum og göngustígum
  • Almennt viðhald á og við götur, gangstéttar og graseyjar
  • Aðstoð við viðgerðir á vatnsveitu- og fráveitulögnum
  • Ýmis smáverk vegna ábendinga íbúa t.d. hreinsun bæjarins, yfirmálun veggjakrots og fleira
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Bílpróf
  • Réttindi á minni gerðir vinnuvéla
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Samviskusemi og stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Hafliðason forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í síma 5258587.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf  hér fyrir neðan.