Auglýst er eftir starfsmanni til starfa á Ægisgrund, heimili fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem jafnframt sinnir tveimur einstaklingum í utankjarnaþjónustu.
Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum.
Leitað er að jákvæðum, ábyrgum og traustum einstaklingum, 20 ára og eldri, sem hafa áhuga á málefnum fatlaðs fólks.
Helstu verkefni:
- Veita íbúum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs, bæði innan og utan heimilis
- Starfa samkvæmt lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við fatlað fólk
Menntun, reynsla og hæfni:
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d. félagsliða- eða stuðningsfulltrúanám
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
- Frumkvæði og ábyrgð í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni
- Bílpróf er skilyrði
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfshlutfall er 94%, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Einnig er óskað eftir tímavinnustarfsmönnum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristinsdóttir forstöðumaður í gegnum netfangið astakr@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.