Sumarstarfsfólk óskast á Ægisgrund

side photo

Auglýst er eftir starfsmönnum á Ægisgrund heimili fatlaðs fólks í Garðabæ.
Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum.

Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Leitað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingum (20 ára og eldri) sem hafa áhuga á málefnum fatlaðs fólks.

Æskilegt að viðkomandi sé sveigjanlegur og geti unnið aukavaktir.

Starfssvið:

  • Starfið felst í að veita íbúum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs innan og utan heimilis
  • Starfað er eftir lögum og reglugerðum sem tengjast málefnum fatlaðs fólks

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur svo sem félagsliða- eða stuðningsfulltrúanám
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögðvinnubrögð
  • Samskiptahæfni
  • Bílpróf skilyrði
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma

Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristinsdóttir forstöðumaður í síma 617-1583 á skrifstofutíma eða með því að senda tölvupóst á astakr@gardabaer.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.