Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 70-100% starf fyrir skólaárið 2024-2025.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 280 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntun, reynsla og hæfni:
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 17. september 2024. Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri sesseljag@sjalandsskoli.is eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri oska@sjalandsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.