Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig

side photo

Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í dönsku í 8.-10. bekk frá 1. janúar 2023 í 35% starf. Um er að ræða afleysingu fyrir skólaárið 2023-2024.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 250 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggur nám og kennslu í dönsku í 8.-10. bekk.
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu á unglingastigi

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Lágmark 90 námseiningar á einu sviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/ eða starfi með börnum/ ungmennum er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu þrátt fyrir endurtekna auglýsingu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 14. desember 2023. Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri, sesseljag@sjalandsskoli.is eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri, oska@sjalandsskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.