Sérkennslustjóri óskast til starfa í 5 ára deild Sjálandsskóla

side photo

Einkunnarorð skólans eru: hraust sál í heilbrigðum líkama. 

Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf með útinámi, vettvangsferðum, hreyfingu í íþróttasal tvisvar í viku, sundkennslu og yoga. Einnig leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti, uppbyggilega orðræðu og gagnkvæma virðingu. Við viljum útskrifa börn sem geta sett öðrum og sjálfum sér mörk og sýni sjálfum sér og öðrum samkennd.

Markmið okkar er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum sem hafa mikinn metnað fyrir starfi sínu.

Helstur verkefni og ábyrgð:  

  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans 
  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu 
  • Sinni einstaka börnum og barnahópum með íhlutun 
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf 
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum 
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Garðabæjar 

Menntun, reynsla og hæfni:  

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi 
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum kostur 
  • Reynsla af starfi með börnum 
  • Færni í samskiptum 
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Hlunnindi 

  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks 
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum 
  • Fimm skipulagsdagar á ári 
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar 
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna 
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins 
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands 
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk 

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2025. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Ósk Þorsteinsdóttir leikskólastjóri í síma 621-9551 eða með því að senda tölvupóst á elinthors@sjalandsskoli.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ferilskrá.