Velferðarsvið Garðabæjar óskar eftir að ráða starfsfólk í spennandi starf

side photo

Velferðarsvið Garðabæjar leitar að jákvæðu, hressu og drífandi starfsfólki í 70-90% starfshlutfall í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.

Um er að ræða starf með einstaklingi með Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdóm, sem notar hjólastól sem hann stýrir sjálfur. Viðkomandi er með eigin bíl og því er mikilvægt að starfsfólk sé með ökuréttindi.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, húmor og framúrskarandi þjónustu. Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf.

Hér má sjá þau hlunnindi sem starfsmönnum Garðabæjar bjóðast.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að styðja einstaklinginn til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan hans, aðstoða hann varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni
  • Aðstoða með öll almenn heimilisstörf
  • Vera félagslegur stuðningur

Hæfniskröfur:

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla og kunnátta í aðstoð við fatlað fólk er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Bílpróf er skilyrði
  • Aldurstakmark 20 ára

Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2024. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Friðriksdóttir forstöðumaður á velferðarsviði Garðabæjar, í síma 617-1581. Einnig er hægt að senda tölvupóst á ingibjorgf@gardabaer.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.