Garðabær auglýsir eftir jákvæðu og hressu fólki, 18 ára og eldra, til starfa með fötluðum börnum og ungmennum. Vinnutímafjöldi á mánuði er einstaklingsbundinn og vinnutími er oftast seinnipart dags og um helgar. Starfið er tilvalið með skóla og sem aukavinna.
Félagslegri liðveislu er meðal annars ætlað að rjúfa félagslega einangrun og efla og styrkja einstaklinginn til þátttöku í menningar- og félagslífi í samræmi við óskir og áhugasvið hans. Stuðla að upplifunum sem styrkja persónulegan þroska og efla félagshæfni og sjálfsmynd með fjölbreyttu starfi.
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf.
Reynsla og hæfni:
- Jákvæðni og færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Æskilegt er að viðkomandi hafi aðgang að bíl
Umsóknarfrestur er til og með 30. September 2023.
Nánari upplýsingar um starfið veita: Gyða María Marvinsdóttir, deildarstjóri í stuðningsþjónustu á fjölskyldusviði, í síma 512-1500, eða með því að senda tölvupóst á gydama@gardabaer.is og Hjörtfríður St. Guðlaugsdóttir, ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks á fjölskyldusviði, í síma 525-8500 eða með því að senda tölvupóst á hjortfridurgu@gardabaer.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.